Eðlilegar aðgerðir markaðar sem markaðsmisnotkun?

Er ekki síminn að verja hagsmuni sína? Væri eitthvað óeðlilegt að Vodafone væri með verkefni um Síma-stórnotendur eða þá Nova og setti sína bestu sölumenn í það verkefni? Átti að setja þá verstu í verkefnið? 

Guðbjörn


mbl.is Fengu hrós frá forstjóranum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg væri ég sáttur

við að vera á áhrifasvæði Rússa. Slík hefur verið tillitssemin frá fyrrum (og núverandi) áhfrifavöldum seinustu 2 ár.
mbl.is Staða Ísland gerbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjóðum skipti

Fáum fjárfesta til að leggja kapal til Bretlands, gefum atvinnulausum íslendingum atvinnu við að byggja upp virkjanir, gefum bretum orku fyrir 100.000 heimili í 4 ár í skiptum fyrir að leggja niður ICESAVE skuldirnar, gefum síðan fjárfestanum og bretum hlutdeild (allan?) hagnað af dreyfingu rafmagns til Bretlands og Evrópu (Hollands?) í 6 ár þar eftir. Niðurstaða: grynnkum á skuldum, eflum traust aftur milli þjóða, fækkum atvinnulausum og atvinnuleysisbótum og eigum rafdreyfikerfi til Evrópu eftir 10 ár.
mbl.is Áfall fyrir orkumarkmið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlægileg frétt: Forrík þjóð m.v. Ísland og mörg önnur lönd

Sumar fréttaskýringar eru bara hlægilegur áróður sem enginn getur skilið tilganginn á bak við, nema verið sé að reyna að "tala" niður Íran svipað og hefur verið gert við Ísland?

 

 


mbl.is Íranska hagkerfið á síðustu dropunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattlækkun á bleyjum!

Það er að segja skattlækkunin sem hefði átt að vera á bleyjum. Þau sem eiga ungabörn vita að þetta er töluverður kostnaður og örugglega þokkalegur hluti af innkaupunum. Þess vegna kemur það skakkt fyrir sjónir að lækka vask af gosi og áskriftum af sjónvarpi og blöðum en ekki bleyjum. En hækkunin, nei lækkunin (ekki vanur svona orði) virðist eiginlega vera horfin, en þó ég fegin myndi vilja vita það þá veit ég það ekki fyrir víst eða þá hvort það var vísitalan eða smásalan eða heildsalan sem stal henni. Enda virðist allur glamúr af þessarri fréttamennsku í dag, ráðamenn og frammámenn hafa þegar tjáð okkur að við eigum að fylgjast með þessu sjálf... Yea right, er virkilega einhver að bera saman kassakvittanir milli mánaða? og láta vita ef það hefur hækkað? Hvert á maður annars að láta vita? Væri ekki besta lausnin að hafa almennilega stofnun sem fylgist með þessu? 

En hvað er ég að kvarta, ég hef náttúrulega nóg af peningum, allavega miðað við verðið á öllu, vextina á lánunum sem ég hef, hækkunina á tryggingunum og nánast öllu öðru. Best að gera eins og allir aðrir (íslendingarnir allavega) og hætta að pæla í þessu; þetta reddast.

-gsh


Virkjun hafin!

Þetta er fyrsta færslan, ætlunin er síðan að vera með vikulegar til mánaðarlegar færslur til að létta á tjáningarþörfinni og málefnin!

Höfundur

Guðbjörn Sverrir Hreinsson
Guðbjörn Sverrir Hreinsson

Nýjustu myndir

  • ATT Global NOC
  • ...aus2_160517
  • Ást!
  • Er ég ekki sæt?
  • Í brúðufötum

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband